Nóóó....! Viljiði líta á
niðurtalninguna!!
Eftir tvær vikur nákvæmlega sit ég í flugvél á
leið til London.. Það verður byrjunin á ferðalagi mínu til
Kína sem tekur næstum tvo daga.. Er búin að vera á útopnu í dag og
mundi segja að ég væri vægast sagt að fara yfir um.. Dagskráin
síðustu og næstu daga er eiginlega aðeins of þétt og finnst mér
eins og ég sé búin að keyra bæinn þverann og endilangan í
erindagjörðum og þar er bensínmælirinn sammála
mér!! Og nú á ég klukkutima pásu og skellti ég mér í
heimsókn til vina minna á Nings sem gera allt fyrir mig, meira að
segja heilsunúðlur með örlítið af núðlunum sjálfum og meira af
kjúlla
En bara svo þið fáið smá sýnishorn úr skipulagsbókinni
minni í þá var þetta á listanum fyrir 26.okt... (lesist hratt
svo þið skynjið stressið..!!)
-Laugar; hitta Sigurþór.
-Trimmform
-Hitta Eggert feldskera útaf komandi þjóðbúning (sem er by the
way langt frá því ða vera reddy!!!)
-Redda tónlist fyrir dansatriði
-Fara í virku og skoða efni fyrir kjól
-Máta bikíní í Sportís
-Fara í djúpnæringu
-Hringja í Lalla útaf myndatöku
-Hitta ömmu útaf skartgripum
-Senda email
-Heyra í stelpunum
-Dansæfing
-Bankann
-Sækja visa niðrí sendiráð
og endlaust.. endalaust mikið meira..
Og eins og þið kannski lesið úr þessu þá er eiginlega ekki
neitt alveg tilbúið fyrir brottför.. En það plöggast vonandi á
endanum..
ENN.. Ég er búin að ákveða kjól..
Dadaraa..!!
Ætla að vera í Ungfrú Ísland kjólnum enn...... Breyta honum
svoldið vel..
Pilsið verður allt saman
miklu meira og stærra og sniðið á toppnum allt öðruvísi.. En
hann lofar ofsalega góðu og ég verð 100% sátt í honum þarna á
sviðinu því ég dyrka þennan kjól.. Ungfrú rvk kjólinn
(gyllti) og hinir tveir sem ég fékk gefins (bleiki og hinn gyllti)
fara að sjálfsögðu með til Kína ásamt miklu fleiri bolum og
kokteilkjólum sem ég og moms erum að sauma eða ég fæ lánað frá
mínum yndislegu vinkonum
Jáhá..! Passið ykkur bara stúlkur því ég
er á leiðinni að koma og róta í téðum fataskápum og
skartgripaskrínum
Annars er kannski kominn tími til að ég segi ykkur aðeins
frá því hvernig þessi keppni virkar.. Það er nefnilega þannig að
það eru 120 stelpur sem taka þátt allsstaðar af úr heiminum.. Við
mætum þarna fimm vikum fyrir keppnina sjálfa og fyrstu tvær
vikurnar erum við bara að ferðast um Kína.. Eftir það byrjar þetta
týpíska undirbúningstímanbil, æfingar, myndatökur, tískusýningar og
kynningarstarfsemi auk þess sem það eru þrjár aukakeppnir fyrir
okkur stelpurnar.. Það er íþróttakeppni, hæfileikakeppni og einhver
ein önnur.. Það er engin skylda að taka þátt í þessum
keppnum en voða sniðugt til þess að vekja athygli.. Og ég ætla
að sjálfsögðu að taka þátt í hæfileikakeppninni og er að setja
saman og æfa dansatriði til að sýna.. Tek nú ábyggilega þátt í
íþróttakeppninni líka til gamans þó að ég sé nú engin hlaupakona
eða langstökkvari
En svo er það nebla þannig að þær sem bera
sigur úr bítum í þessum aukakeppnum eru komnar beint upp í topp 15
úrslitin í aðalkeppninni sjálfri.. Og hinum 12 sem komast í top15
úrslitin líka er skipt þannig niður að það eru alltaf tvær frá
hverri heimsálfu og heimsálfurnar eru 6 samkvæmt skiptinguni þarna
úti.. Þannig að það má í rauninni líta á þetta þannig að ég sé bara
að keppa við Norður-Evrópu stelpurnar um að
komast í top15.
En nú kemur setbackið.. Þessar tólf sem eru
valdar inn í úrslitin eru valdar í gegnum
SÍMAKOSNINGU..!! Þannig að litla Ísland
getur gleymt því að eiga fulltrúa í úrslitum þó svo að það hafi nú
verið álíka líklegt núna í ár og að kötturinn minn Bjartur
mundi læra að tala..
Sérstaklega samt líka þar sem keppnin
verður ábyggilega ekkert sýnd hérna heima.. Skjár einn á réttinn á
henni og mér skilst að það sé mjög ólíklegt að hún verði sýnd
hér.. hrát..
Held að ástæðan fyrir því sé tímamismunurinn.. Keppnin verður á
lau.. morgni hérna á Íslandi en þá er einmitt kvöld í kína.. Vinir
og vandamenn verða því bara að sameinast hjá einhverjum með
gervihnött og reyna að finna stöð sem sýnir þetta 
En jæja.. lengsti pistill í sögunni.. Til hamingju með að hafa
nennt að lesa hann 
Pásan í dagskránni búin..!
-Puns-